Velkomin í Orðaleikjabankann
Þessi vefsíða er hluti af B.Ed. lokaverkefni í grunnskólakennarafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Um verkefnið
Í þessu lokaverkefni var í upphafi lagt upp með það hvort efla mætti lestur nemenda í gegnum leik. Eftir að hafa verið á vettvangi og unnið með nemendum á yngsta stigi grunnskóla var ákveðið að þrengja efnið og afmarka sig að því hvernig mætti efla orðaforða nemenda í gegnum leik. Við fengum að koma inn í Sunnulækjarskóla á Selfossi og kenna nemendum í 1. bekk leiki til að sjá hvort þeir myndu virka sem leið til að efla orðaforða.
Það var áhugavert og skemmtilegt að vinna þetta verkefni en þó krefjandi á köflum að finna það sem virkaði. Við vonum að vefurinn nýtist kennurum og öðrum þegar unnið er með orðaforða yngri barna.
Eygló Dögg Hreiðarsdóttir
Sólrún Sigurðardóttir