Hugmyndir af námsspilum
Hér að neðan eru hugmyndir höfunda að námspilum sem sem okkur fannst hentug til að efla orðaforða nemenda. Þessi spil hafa höfundar spilað við nemendur á yngsta stigi í grunnskóla í sínu vettvangsnámi. Þessi spil eru fáanleg hjá Spilavinum og A4.
1. Fyrstur með orðið
Í þessu spili þurfa þátttakendur að koma ýmsum hlutum í orð með því að nota einn ákveðinn staf.
2. Sprengjuspilið
Í sprengjuspilinu þarf að koma fjölbreyttum myndum í orð.
3. Gettu hver ?
Gettu hver ? er spil sem er hentugt til að þjálfa orðaforða. Leikurinn krefst þess að notuð séu orð til að útiloka persónur og finna þann sem leitað er að.
4. Krakka-Alias
Útskýra á orðin og myndirnar sem eru á spjöldunum fyrir liðsmönnum án þess að segja orðin. Börn sem kunna ekki að lesa geta líka tekið þátt í spilinu því myndirnar sýna orðið sem á að útskýra.
5. Segðu mér sögu
Í spilinu þurfa þátttakendur að safna saman fimm söguspjöldum sem tilheyra ákveðnu persónuspjaldi og semja sögu út frá þeim. Spilið þjálfar ímyndunarafl, eflir sköpunargleðina og reynir á rökhugsun.