Ýmsir hópa- og samvinnuleikir
Við teljum að þegar unnið er með fjölbreyttan nemendahóp sé mikilvægt að leggja áherslu á að efla nemendur í að vinna saman í hóp. Með því skapast umræður á milli nemenda sem við teljum mikilvægar. Okkur fannst þessi flokkur leikja einnig góður þegar við vorum að kynnast nemendum og sjáum fyrir okkur að hann geti líka hentað vel þegar nemendur eru að kynnast.
Hóp- og samvinnuleikirnir í Orðaleikjabankanum reyna á frásögn en ekki síður á hlustun nemenda. Þeir þurfa að vinna saman til að leysa verkefni sem leikurinn krefur þá um. Nemendur þurfa að nota tungumálið á fjölbreytta vegu, nota hugtök og lýsa sjálfum sér á jákvæðan hátt.