Hugtakakastalinn
Markmið:
Að þjálfa hugtökin undir, yfir, ofan á, fyrir framan og aftan.
Aldur:
Yngsta stig grunnskóla
Gögn:
Stóll
Leiklýsing:
Leikurinn byrjar á því að nemendur koma sér fyrir fyrir aftan stólana sína. Kennarinn segir að stólinn sé kastali og að nemendur eigi að leysa verkefni til að komast inn í hann. Kennarinn segir að nú skuli nemendur fara fram fyrir kastalann. Þegar allir hafa komið sér fyrir fyrir framan stólinn biður kennarinn nemendur að fara undir kastalann. Síðan eru öll hugtökin notuð og nemendur þurfa að koma sér fyrir samkvæmt þeim. Þegar búið er að fara yfir hugtökin segir kennarinn að kastalinn hafi opnast og allir megi fá sér sæti inni í honum. Þá setjast nemendur allir á sinn stól.
Aðrar útfærslur:
Hægt er að láta nemendur vinna saman og búa til kastala úr borðum og þjálfa hugtökin.
Heimild: Hugmynd höfunda.

Útprentanlegt eyðublað með leiknum
Hugtakakastalinn. | |
File Size: | 455 kb |
File Type: |