Flokkaðu orðið
Markmið:
Að auka þekkingu og skilning á samheitum.
Aldur:
Yngsta stig grunnskóla
Gögn:
Kassar til að flokka í.
Miðar með orðum.
Leiklýsing:
Nemendum er skipt í 3-4 manna hópa. Hver hópur fær miða með samheitum orðanna éta, hlæga, hrópa, horfa og Iabba. Orðin eru borða, snæða, háma í sig, skella upp úr, flissa, kalla, öskra, æpa, gægjast, kíkja, líta, sjá, ganga, rölta, arka, þramma. Hópurinn dregur einn miða og kemst svo að sameiginlegri niðurstöðu um hvernig eigi að flokka orðið sem dregið var. Þegar búið er að skila miðanum í kassann er nýr miði dreginn og svona gengur leikurinn þangað til allir miðarnir eru búnir. Þegar allir hópar hafa lokið sinni flokkun er farið yfir miðana og nemendur látnir segja af hverju þeir settu hann á þann stað sem þeir völdu.
Aðrar útfærslur:
Það er líka hægt að gera þetta að einstaklingsverkefni.
Þá er einnig hægt að vinna með annars konar orðflokka.
Heimild: Hugmynd fengin af vef Menntamálastofnunar, vefir.nams.is/ordaleikir/

Útprentanlegt eyðublað með leiknum
Flokkaðu orðið. | |
File Size: | 491 kb |
File Type: |