Eygló Dögg Hreiðarsdóttir
Síðastliðin þrjú ár hef ég stundað nám í Háskóla Íslands á Menntavísindasviði og ég útskrifast með B.Ed gráðu í júní 2017. Að starfa með börnum heillar mig og það kom ekki á óvart þegar ég valdi kennslu yngri barna í grunnskóla sem kjörsvið. Í vettvangsnámi mínu hef ég heillast af fjölbreyttum kennsluaðferðum og ég valdi mér að fjalla um eina áhugaverða kennsluaðferð í lokaverkefninu mínu.
Að nota leiki sem kennsluaðferð í skólastarfi kemur að góðum notum í námi og kennslu að mínu mati og auðgar með lærdómsríkum og þroskandi hætti það sem þjálfa á eða vinna með hverju sinni. Ég hef notað Leikjvefinn mikið í mínu vettvangsnámi og finnst gott að hafa aðgengi að efni sem inniheldur leiki til að vinna með í skólastarfi.

Sólrún Sigurðardóttir
Síðastliðin þrjú ár hef ég stundað nám í Háskóla Íslands á Menntavísindasviði. Kjörsviðið mitt er kennsla yngri barna í grunnskóla. Þetta hefur verið skemmtilegur, krefjandi og fræðandi tími. Ég hef reynt að velja mismunandi áfanga til að geta mætt fjölbreyttum nemendahópi á vettvangi. Vettvangsnám hefur verið stór hluti af námi mínu og þar hefur þurft að nálgast kennslu á fjölbreyttan hátt til að ná til ólíkra nemenda. Fjölbreyttar kennsluaðferðir er nauðsynlegar í skóla án aðgreiningar til að mæta þörfum allra. Ég vil tileinka mér óhefðbundnar og skapandi leiðir að markmiðum mínum.
Ég hef áhuga á að efni sem nýta má í kennslu sé aðgengilegt og að því sé safnað saman á skipulagðan hátt svo sem flestir geti nýtt það. Það þarf ekki alltaf að finna upp hjólið en ég er líka á þeirri skoðun að auðveldara sé að finna það upp ef aðgengi að kennsluefni er gott. Leikir í skólastarfi hafa fylgt mér í vettvangsnámi mínu, þar sé ég tækifæri fyrir fjölbreyttri nálgun í námi.