Ég er frábær
Markmið:
Að nemendur auki við þekkingu sína og skilning á orðum sem tengjast vináttu.
Aldur:
Yngsta stig grunnskóla
Gögn:
Engin
Leiklýsing:
Unnið er með vináttuna í þessum leik. Nemendur setjast í hring og einn nemandi byrjar á því að segja eitthvað jákvætt um vináttu. Sá sem byrjar segir t.d.: „Ég er frábær vinur af því að ég …“ og að því loknu segir allur hópurinn: „Við erum sammála því!“ Þá á sá sem situr honum á vinstri hönd að gera og svo koll af kolli uns allir í hringnum hafa sagt eitthvað fallegt um sjálfan sig og vináttu. Kennarinn hefur leikinn og er góð fyrirmynd fyrir nemendurna.
Aðrar útfærslur:
Það er hægt að vinna með fleira en vináttuna í þessum leik. T.d. væri hægt að vinna meira með orðaforða nemenda með því að spyrja frekar út í svar nemenda. Dæmi: „Ég er frábær vinur af því að ég er skemmtilegur við alla“. Þá gæti kennarinn komið með spurningu sem væri einhvern veginn á þessa leið: „Er til annað orð sem táknar sama og orðið skemmtilegur". Nemendur gætu þá rétt upp hönd og sagt hvaða orð þeir væru með í huga. Með þessu væri hægt að auka orðaforða nemenda frekar.
Heimild: Hugmynd fengin af Leikjavefnum, leikjavefurinn.is/eg-er-frabaer-eins-og-eg-er/

Útprentanlegt eyðublað með leiknum
Ég er frábær. | |
File Size: | 626 kb |
File Type: |