Um Orðaleikjabankann
Höfundar hafa setið mörg námskeið í læsi og lestarkennslu á yngsta stigi. Þeir sátu svo námskeiðið Leikir í frístunda- og skólastarfi haustið 2016. Þá kviknaði sú hugmynd að sameina þessi tvö svið í lokaverkefni. Höfundar höfðu ekki hugmynd um hvernig þeir vildu láta þau renna saman en úr varð að vinna með orðaforða og leik. Höfundar hafa í námi sínu fengið innsýn í upplýsingatækni og þeir vildu nýta þá þekkingu til að koma efninu frá sér. Fyrir valinu varð vefsíða með leikjahugmyndum sem leið til að efla orðaforða barna.
Við leituðum víða fanga varðandi efni og studdumst við innlendar og erlendar heimasíður í þeirri leit.Við fengum hugmyndir víða sem við nýttum okkur í að skapa leiki sjálfar. Við höfðum í huga að hafa leikina fjölbreytta til að nálgast kennslu á orðaforða á marga vegu. Áhugi okkar á leikjum til kennslu nýttist okkur við leit að leikjum, við vissum hvar við gætum leitað að gersemum sem nota mætti til að ná markmiðum okkar, að nota leik sem leið til að efla orðaforða.
Allir leikirnir voru lagðir fyrir nemendur í fyrsta bekk Sunnulækjarskóla á Selfossi. Leikirnir voru kenndir misstórum nemendahópum. Sumir leikir hentuðu fyrir allan bekkinn á meðan aðrir hentuðu betur fyrir minni hópa. Marga af þessum leikjum er svo hægt að aðlaga bæði að minni og stærri nemendahópum en leitast er við að útskýra það í leikjalýsingu á eyðublaði fyrir leikina.
Sumir leikir voru lagðir fyrir tvisvar en það gerðum við til að sjá með skýrum hætti hvort leikurinn hentaði eður ei. Við bættum leikina og breyttum og lögðum þá stundum aftur fyrir ef við sáum námsmarkmið sem hægt var að vinna með til að efla orðaforða. Leikir voru ígrundaðir, tekið var tillit til aðstæðna sem voru mismunandi þegar unnið var með fjölbreytta nemendahópa.