Uppskrift að tilfinningum
Markmið:
Að auka þekkingu og skilning á orðum sem lýsa tilfinningum.
Aldur:
Yngsta stig grunnskóla
Gögn:
Miðar með orðum sem lýsa tilfinningum og uppskriftarblöð fyrir hvern hóp.
Leiklýsing:
Bekknum er skipt í lið. Hentugt er að hafa 3-4 nemendur í hverju liði. Hvert lið fær blað sem á eru orð sem lýsa tilfinningum einnar manneskju þetta geta verið orð eins og glöð, döpur, einmanna o.s.frv. Nemendur raða sér svo á mismunandi staði í stofunni. Í miðri stofunni er borð og á því eru miðar sem hafa að geyma fjölbreytt orð sem tengjast tilfinningum. Leikreglur eru þær að nemendur eiga að finna sína uppskrift. Fyrsti nemandi fer að borðinu og ef hann fær orð sem er á hans uppskriftarblaði setur hann það hjá blaðinu og næsti nemandi fer af stað og dregur aftur. Ef orð er ekki á blaðinu fer nemandinn sem er næstur í röðinni með það aftur á borðið og dregur miða næst. Þegar allir hafa fundið sína uppskrift fá nemendur tíma til að ræða um sína uppskrift og koma henni í orð sem lýsa einstaklingi. Að lokum er honum lýst fyrir bekkjarfélögunum .
Aðrar útfærslur:
Hægt er að vinna með annars konar hugtök, t.d. vináttu eða einkenni manneskju. Einnig má tengja leikinn við viðfangsefni á borð við einelti. Þegar unnið er með unga nemendur sem ekki hafa náð góðum tökum á lestri er hægt að nota myndræna miða og uppskriftir og hafa þá orðin með.
Heimild: Hugmynd höfunda.

Útprentanlegt eyðublað með leiknum
Uppskrift að tilfinningum. | |
File Size: | 480 kb |
File Type: |