Sjór, land og loft
Markmið:
Að auka þekkingu og skilning nemenda á ákveðnum orðum.
Aldur:
Yngsta stig grunnskóla.
Gögn:
Spjöld:
Blátt fyrir sjó.
Grænt fyrir land.
Gult fyrir loft.
Leiklýsing:
Nemendur fá orð sem þeir eiga að tengja við sjó, land eða loft. Spjöldum er komið fyrir á gólfinu í kennslurýminu. Bláu spjaldi fyrir sjó, grænu fyrir land og gulu fyrir loft. Kennarinn byrjar leikinn á að nefna orð sem tengist einhverju þessara hugtaka. Nemendur eiga í framhaldi að fara á þann stað sem þeir halda að hugtakið tengist. Þegar allir hafa komið sér á staðinn á hver og einn að útskýra orð og afhverju hann valdi þann stað sem hann stendur á.
Aðrar útfærslur:
Hægt er að útfæra þennan leik á marga vegu. Það er hægt að hafa hann myndrænan og láta nemendur hengja merki á veggmynd af sjó, landi og lofti.
Nemendur geta líka teiknað mynd sjálfir, breytt orðunum í myndir og teiknað inn á sitt verk. Þá geta þeir sagt frá myndinni og rökstutt af hverju fyrirbærunum var komið fyrir þar sem þau eru.
Heimild: Hugmynd kemur úr Leikum okkur, eldri.reykjavik.is/Portaldata/1/Resources/skjol/svid/itr/skjol/utgefidefni/leikjahandbok_itr.pdf

Útprentanlegt eyðublað með leiknum
Sjór land og loft. | |
File Size: | 350 kb |
File Type: |