Námsspil og hermileikir
Okkur fannst leikir sem eru í flokknum námsspil og hermileikir mjög hentug leið til að miðla upplýsingunum til nemenda. Að læra í gegnum spil eða leik teljum við vera góða kennsluaðferð í skólastarfi. Mikið er til af fjölbreyttum námspilum sem hægt er að nýta í kennslu. Að okkar mati eru námspil góð leið til að hrista saman ólíka nemendahópa og einnig til að vinna með nemendum í stöðvavinnu þar sem sjálfstæð vinnubrögð eru viðhöfð.
Í Orðaleikjabankanum komum við með nokkrar hugmyndir að námspilum þar sem unnið er með útskýringu á orðum, sögugerð, að koma myndum í orð og tengsl stafs og orðs. Þetta eru allt spil sem höfundar hafa spilað með börnum á yngsta stigi grunnskóla.