Hvað þýðir nafnið þitt ?
Markmið:
Að geta tjáð sig með fjölbreyttum orðaforða.
Aldur:
Yngsta stig grunnskóla
Gögn:
Engin
Leiklýsing:
Nemendur setjast í hring á gólfinu og sá nemandi sem byrjar segir nafnið sitt. Hann segir hópnum líka hvað hann heldur að nafnið þýði og afhverju hann heldur það. Hann er einnig spurður hvort hann viti til þess að hann hafi verið skírður eftir einhverjum sem ber sama nafn.
Aðrar útfærslur:
Það er hægt að útfæra þennan leik á ýmsan máta. Það er t.d hægt að para nemendur saman og þá getur annar aðilinn sagt frá nafni hins og svo öfugt.
Heimild: Hugmynd fengin á netinu, www.youtube.com/watch?v=Uv1JkBL5728
Útprentanlegt eyðublað með leiknum
Hvað þýðir nafnið þitt | |
File Size: | 345 kb |
File Type: |