Hreyfi- og skynjunarleikir
Við völdum að hafa flokkinn hreyfi- og skynjunarleiki með í verkefninu þar sem hreyfing gegnir stóru hlutverki í lífi barna. Við teljum að stór hluti nemenda sé tilbúin að standa upp frá námsbókinni og hreyfa sig þar sem notast er við leiki eftir langa setu. Hægt er að fara í hreyfileiki bæði innanhúss og utanhúss. Með þessum flokki leikja er hægt að samþætta námsgreinar og eins að efla nemendur í að koma athöfnum í orð svo eitthvað sé nefnt. Að brjóta upp kennslustund með hreyfileik teljum við að hafi áhrif á andlega og líkamlega vellíðan nemenda.
Í Orðaleikjabankanum eru nokkrir leikir sem falla undir þennan flokk. Þar er m.a. unnið með hugtök og orð tengd við athafnir ásamt því að auka þekkingu og skilning á ákveðnum orðum þar sem hreyfing kemur við sögu.