Orðabingó
Markmið:
Að auka þekkingu og skilning á ákveðnum orðum.
Aldur:
Yngsta stig grunnskóla
Gögn:
Bingóspjöld.
Orð.
Poki.
Leiklýsing:
Hver nemandi fær bingóspjald og á því eru sex orð. Kennarinn dregur orð og setur orðið í merkingabæra setningu, t.d: “Það er góður ilmur úr eldhúsinu“ eða „hún Gunna er blíð og góð“. Nemendur eru spurðir um orðið og hvað merkingu þeir leggja í það. Áður en næsta orð er dregið strika þeir nemendur yfir orðið sem höfðu það á sínu spjaldi. Leiknum er svo lokið þegar allir hafa fengið bingó.
Aðrar útfærslur:
Einnig má vinna með orð sem tengjast kennsluefninu hverju sinni, t.d. þematengd orð um líkamann, náttúruna eða landnámið.
Heimild: Hugmynd höfunda.

Útprentanlegt eyðublað með leiknum
Orðabingó. | |
File Size: | 371 kb |
File Type: |