Mannslíkaminn
Markmið:
Að auka þekkingu og skilning á orðum sem tengjast mannslíkamanum.
Aldur:
Yngsta stig grunnskóla
Gögn:
Tafla.
Spjöld með orðum.
Leiklýsing:
Kennarinn teiknar mannslíkama á töfluna en einnig er hægt að prenta út mynd af honum. Kennarinn er búinn að gera spjöld með orðum sem tengjast mannslíkamanum. Hver nemandi dregur eitt spjald. Þegar allir hafa dregið spjald kemur einn og einn nemandi upp og staðsetur sitt spjald á líkamanum. Nemendur geta spurt samnemendur ef þeir vita ekki hvar orðið á að vera og kennarinn er nemendum til stuðnings ef þeir finna ekki neina lausn . Leiknum lýkur þegar allir hafa komið sínum miða á réttan stað.
Aðrar útfærslur:
Það er hægt að hafa spjöldin myndræn fyrir yngri nemendur.
Hægt er að vinna með önnur efni eins og heimili, búð eða sjúkrahús.
Heimild: Hugmynd fengin af vef Menntamálastofnunar, vefir.nams.is/leikur_ad_islensku/body.html

Útprentanlegt eyðiblað með leiknum
Mannslíkaminn. | |
File Size: | 365 kb |
File Type: |