Reyndu betur
Markmið:
Að geta útskýrt orð/hugtök fyrir öðrum.
Aldur:
Yngsta stig grunnskóla
Gögn:
Spjöld sem innihalda orð/hugtak (hægt að nota spjöld úr borðspilinu Alians).
Skeiðklukka.
Leiklýsing:
Nemendahópnum er skipt í tveggja manna hópa. Unnið er í 5 mínútur í senn og svo skipta félagarnir um hlutverk. Í upphafi fær annar nemandinn í hendurnar bunka af spjöldum sem innihalda orð/hugtök. Sá nemandi á að draga eitt spjald í einu og lýsa merkingu orðsins fyrir félaga sínum, án þess að minnast á orðið sjálft. Þó má hann nota orð sömu merkingar. Þegar félaginn giskar á rétt orð er næsta spjald valið og svo koll af kolli þar til tíminn er búinn.
Aðrar útfærslur:
Á eldri stigum er hægt er að útfæra leikinn þannig að kennsluborðum er raðað í hring og helmingur situr í ytri hring og helmingur í innri hring. Þeir sem sitja í ytri hring sjá um að spyrja. Þegar tíminn er liðinn færir hver þátttakandi sig yfir á næsta stól til vinstri og fær þá annan liðsmann. Þegar hringurinn er búinn er hægt að skipta um hlutverk og þeir sem eru í innri hring sjá þá um að spyrja.
Heimild: Hugmynd úr heftinu Leikjabankinn 1997

Útprentanlegt eyðublað með leiknum
Reyndu betur. | |
File Size: | 352 kb |
File Type: |