Húsbygging
Markmið:
Að þjálfa nemendur í notkun einstakra orða.
Aldur:
Yngsta stig grunnskóla
Gögn:
Tafla.
Töflutúss.
Leiklýsing:
Kennarinn velur orð og setur á töfluna jafn margar auðar línur og stafirnir í orðinu eru. Nemendur eiga svo að giska á staf og ef hann er í orðinu skrifar kennarinn stafinn á viðeigandi línu. Ef stafurinn er ekki í orðinuteiknar kennarinn einn hlut úr húsi. Markmið nemendanna er að giska á orðið áður en að húsið er fullbúið hjá kennaranum.
Aðrar útfærslur:
Það er líka hægt að búa til setningar og láta nemendur stinga upp á orðum.
Heimild: Hugmynd á útfærslu kom frá leiðsagnarkennara okkar í vettvangsnáminu.
Útprentanlegt eyðublað með leiknum
Húsbygging | |
File Size: | 363 kb |
File Type: |