Hvað leynist í pokanum ?
Markmið:
Að þjálfa hugtök á borð við mjúkur, harður, linur, minni, stærri og svo framvegis.
Aldur:
Yngsta stig grunnskóla
Gögn:
Poki sem sést ekki í gegnum.
Ýmsir valdir smáhlutir.
Leiklýsing:
Nemendahópurinn sest í hring. Kennarinn kemur með poka (sem sést ekki í gegnum) sem inniheldur nokkra smáhluti og færir einum nemanda. Nemandinn sem fær pokann stingur hendinni í pokann og þreifar á einhverjum hlut. Nemandinn lýsir svo hlutnum upphátt án þess að segja nafnið á honum. Þegar giskað er á réttan hlut er hluturinn tekinn upp úr pokanum og skoðaður. Sá sem svaraði rétt tekur þá við pokanum og heldur áfram.
Aðrar útfærslur:
Það er hægt að útfæra leikinn þannig að bundið sé fyrir augun á nemandanum sem er með pokann. Hann tekur einn hlut upp úr pokanum, samnemendur hans sjá hlutinn og sá sem er með bundið fyrir augun giskar á hver hluturinn er. Hann má spyrja samnemendur út í hlutinn og komast þannig nær því að giska á rétt svar.
Heimild: Hugmynd er fengin frá leiðsagnarkennara okkar í vettvangsnáminu.

Útprentanlegt eyðublað með leiknum
Hvað leynist í pokanum. | |
File Size: | 460 kb |
File Type: |