Finnum fleiri orð
Markmið:
Að finna sem flest orð úr stöfunum í stóra orðinu sem unnið er með
Aldur:
Yngsta stig grunnskóla
Gögn:
Blöð.
Skriffæri.
Leiklýsing:
Nemendurvinna tveir og tveir saman. Kennarinn lætur hvert par hafa blað sem inniheldur eitt langt orð. Hvert par á að finna eins mörg orð oghægt er úr stöfunum í langa orðinu. Dæmi: Hjólhestur. Möguleg orð eru t.d. hjól, jól, ól, hestur, lestur. Ekkert par fær eins orð. Þegar öll pörin hafa skrifað niður þau orð sem þau fundu er farið yfir öll orðin uppi á töflu með kennaranum. Þá geta þeir sem finna fleiri orð bætt þeim við á töfluna.
Aðrar útfærslur:
Það væri líka hægt að útfæra þennan leik þannig að kennarinn skrifaði eitt langt orð upp á töflu og nemendur kæmu með uppástungur að orðum úr stöfunum í stóra orðinu.
Heimild: Hugmynd úr heftinu Leikjabankinn 1997
.
Útprentanlegt eyðublað með leiknum
Finnum fleiri orð | |
File Size: | 470 kb |
File Type: |