Ég er svangur
Markmið:
Að geta tjáð sig á fjölbreyttan hátt um orð sem tengjast mat.
Aldur:
Yngsta stig grunnskóla
Gögn:
Engin
Leiklýsing:
Nemendur sitja í hring og segja allir saman: „Ég var svangur í gær og fór heim og fékk mér …“ Sá sem byrjar bætir því við sem hann fékk sér og verður það að vera eitthvað sem hefur sama upphafsstaf og er í nafni hans. Sá sem situr honum á vinstri hönd tekur svo við og koll af kolli þangað til að allir í hringnum hafa tekið þátt. Einnig er möguleiki að leyfa nemendum að fá sér eitthvað tvennt og þá væri hægt að notast við nafn og föðurnafn. Þannig gæti Jón Jónsson fengið sér jógúrt og jarðarber.
Aðrar útfærslur:
Til dæmis er hægt að notast við starfrófið og þá gæti nemandinn sem byrjar sagt: „Ég fór út í búð og keypti ananas.“ Þá segir næsti nemandi eitthvað sem byrjar á B og svo framvegis.
Heimild: Höfundar fengu hugmyndina að leiknum í vettvangsnámi.

Útprentanlegt eyðublað með leiknum
Ég er svangur. | |
File Size: | 350 kb |
File Type: |