Satt og ósatt
Markmið:
Að nemendur finni orði sem lýsi ímyndun og raunveruleika
Aldur:
Yngsta stig grunnskóla
Gögn:
Engin
Leiklýsing:
Nemendur fá stuttan tíma í upphafi leiks til að semja tvær setningar um sig. Önnur setningin er sannleikur en hin setningin er lygi. Þessar setningar verða þeir að geyma hjá sér. Þegar leikurinn hefst setjast nemendur í hring og sá sem byrjar leikinn segir setningarnar tvær sem hann var búin að semja. Sá sem situr honum á vinstri hönd giskar á hvor setningin sé röng. Í framhaldi segir sá sem giskaði sínar setningar og svo koll af kolli þangað til að allir í hringnum hafa sagt sínar setningar.
Aðrar útfærslur:
Í leiknum mætti nota fleiri en tvær setningar en jafnvel væri bara ein af þeim sönn.
Heimild: Hugmynd fengu höfundar á námskeiðinu Leikir í frístunda- og skólastarfi í Háskóla Íslands haustið 2016
Útprentanlegt eyðublað með leiknum
Satt og ósatt. | |
File Size: | 349 kb |
File Type: |