Orða- og málþroskaleikir
Helsti kostur orðaleikja, að okkar mati, er sá að þeir auka og efla orðaforða nemenda á skemmtilegan og jákvæðan hátt. Nemendur fá æfingu í að útskýra orð, skrifa þau og tjá sig um þau svo eitthvað sé nefnt. Við erum á þeirri skoðun að nám sem oft er leiðingjarnt og fullt af endurtekningum geti orðið bæði áhugavert og skemmtilegt þegar orðaleikir eru notaðir í kennslu.
Þeir leikir sem við flokkuðum undir orða- og málþroskaleiki í Orðaleikjabankanum fannst okkur koma vel út þegar þjálfa átti orðaforða nemenda. Unnið var með markorð og skilning á þematengdum orðum og nemendur þurftu að finna fleiri orð úr lengra orði.