Segðu mér sögu
Markmið:
Að nemendur noti jákvæð orð í frásögn sinni.
Aldur:
Yngsta stig grunnskóla
Gögn:
Ekkert
Leiklýsing:
Þemað í þessum leik er að vera jákvæður. Nemendur ætla að búa til sögu saman. Nemendahópurinn sest í hring. Sá sem byrjar segir fyrstu setninguna í sögunni. Sá sem er næstur heldur áfram með hana og svo koll af kolli. Nemendur fá nokkuð frjálsar hendur fyrir utan það að setningarnar eiga að vera jákvæðar.
Aðrar útfærslur:
Það er einnig hægt að útfæra þennan leik með öðru þema. Það væri sniðugt að nota hann sem kveikju þegar unnið er með ákveðið verkefni, t.d vináttu. Þá ætti hver setning að snúast um vináttu. Það væri líka sniðugt að taka söguna upp og skrifa hana svo niður. Það væri þá möguleiki að halda áfram með hana síðar.
Heimild: Hugmyndin kom af spilinu Segðu sögu (Tell a Story)

Útprentanlegt eyðublað með leiknum
Segðu mér sögu. | |
File Size: | 346 kb |
File Type: |