Láttu pokann ganga
Markmið:
Að nemendur geti lýst ólíkum hlutum á ýmsa vegu
Aldur:
Yngsta stig grunnskóla
Gögn:
Poki sem inniheldur ólíka hluti.
Leiklýsing:
Kennarinn safnar smáhlutum í poka, það er gott að velja ólíka hluti með mismunandi eiginleika. Nemendur setjast í hring ásamt kennaranum. Kennarinn leikur tónlist, dregur einn hlut upp úr pokanum og lætur hann ganga hringinn. Þegar að tónlistin stöðvast á sá nemandi sem heldur á hlutnum að að segja frá honum. Kennarinn spyr svo spurninga sem hópurinn á að svara t.d.:
• Hvað heitir hluturinn?
• Til hvers er hluturinn notaður?
• Hefur þú séð svona hlut áður?
• Hvernig er hluturinn á litinn?
• Er hluturinn harður/mjúkur/léttur/þungur?
• Er hægt að nota hlutinn í fleiri en einum tilgangi?
Þetta er endurtekið þangað til allir hafa fengið að taka þátt eða kennarinn telur að allir hafi verið með í umræðunum.
Aðrar útfærslur:
Það er líka hægt að hafa pokana þematengda til að skerpa á hugtökum sem verið er að vinna með. Einnig er hægt að láta nemendur koma með hluti í pokann.
Heimild: Leikur er fenginn af Leikjavefnum, leikjavefurinn.is/hvad-er-i-pokanum/

Útprentanlegt eyðublað með leiknum
Láttu pokann ganga. | |
File Size: | 349 kb |
File Type: |